logo

Hvolpar á leiðinni

13 ágúst 2009

 Ég fór með Berlín í dag að hitta Steinunni á dýrspítalanum og hún staðfesti við mig að Berlín væri hvolpafull. Hún var mjög hissa að heyra að Berlín á núna eftir 4 vikur og 6 daga af meðgöngunni og hún er strax orðin þetta stór.
 
Þetta er mjög spennandi got og við getum ekki beðið eftir að hvolpanir líti dagsins ljós. Þetta verður fyrsta gotið hans Myrkva á landinu og við erum Líney ævinlega þakklát fyrir að leyfa okkur að nota hann.