logo

Albert Einstein besti sinnar tegundar

24 ágúst 2009

Svartwalds Albert Einstein gerði sér lítið fyrir og varð Best hundur tegundar á laugardaginn á afmælissýningu HRFÍ. Aðeins 11 mánaða gamall og fékk sitt fyrsta íslenska meistarastig. Það var hörð samkeppni, alls 24 svartir schnauzer skráðir til leiks. Þetta er sannarlega frábær sigur og við erum ennþá í skýjunum yfir þessu. Albert fékk líka ótrúlega flotta dóma og við getum ekki beðið eftir að hann þroskist meira því hann á mikið inni. Viljum þakka Hjördísi og fjölskyldu kærlega fyrir að hugsa svona vel um strákinn okkar og Líney fyrir að flytja inn Hugo Hermes og leifa okkur að nota hann.
 
Svartwalds Abbadís gekk einnig mjög vel þrátt fyrir að vera ákaflega gelgjuleg og fékk excellent báða dagana og fína dóma.