logo

Frábær sýningarhelgi að baki

5 október 2009

Frábær sýningarhelgi að baki. Svartwalds Albert Einstein fékk Excellent (en því miður ekki Meistarefni í þetta sinn) og frábæran dóm frá Kresten Scheel. Kresten var ótrúlega harður og voru aðeins 4 eða 5 hundar sem fengu excellent, hann var duglegur að dreifa út Very good og Good borðum ef honum fannst hundarnir ekki lifa upp til standardsins.
Mér hlotnaðist einnig sá heiður að fá að sýna Myrka eða Dark Prince Hermes, sem er faðir hvolpanna okkar en hann varð Besti Hundur Tegundar og fékk síðasta Alþjólega meistarstigið sitt og er þar af leiðandi orðinn Alþjólegur meistari. Við viljum óska Líney (Kolskeggs ræktun) innilega til hamingju með þennan frábæra rakka og einning tíkina sína hana Kolskeggs Candy Cortina en hún varð Besta Tík Tegundar og fékk einning Alþjólegt meistarstig og íslenskt meistarstig.
 
Japanese Chinninn minn hann Sjarmakots Evie fékk líka íslenskt meistarstig og þarf núna bara eitt í viðbót til að vera íslenskur meistari.