Nýtt got
28 april 2010
Hvolpafréttir! Þann 25. apríl eignaðist Kolskeggs Bravo Galadriel "Kráka" 7 hvolpa með honum Svartwalds Albert Einstein "Albert". Fæddir hvolpar eru einn rakki og sex tíkur, nokkuð góð frjósemi. Allir hvolpunum heilsast vel og er Kráka einstaklega dugleg að hugsa um þá og átti ekki erfitt með að koma þeim frá sér. Þetta er virkilega spennandi got og leitumst við eftir að halda eftir tík úr þessi goti.
Við bindum miklar væntingar við þetta got, þar sem að við sameinum einstaklinga sem að bæta hvort annað upp að öllu leyti. Albert er tignarlegur rakki með alla þá kosti sem að sönnum sýningarhundi sæmir. Kráka er mjög smá, kröftug, með mjög fallegt höfuð og með frábær feldgæði.










