Um okkur
Ég skoðaði fyrsta got Merkurlautar-ræktunar haustið 2004 og varð gjörsamlega heilluð af tegundinni og foreldrum Berlínar. Berlin fæddist ári síðar eða haustið 2005. Eftir kynni mín við tegundina var ekki aftur snúið, Berlin er með þeim skemmtilegustu hundum sem ég hef kynnst, hún er opin skemmtileg, hugrök, þrjósk, þjófótt og heillandi karakter með sína Wisky rödd, Ég er mjög heppinn að hafa kynnst tegundinni hér svona snemma, og nánast fengið að fylgjast með frá byrjun ræktunar hér Íslandi, og kynnst yndislegu fólki og fengið að fylgjast með hverju gotinu á fætur öðru og séð tegundina stækka og dafna, það eru um 300 schauzers á landinu. Ég hef einning fengið að fylgjast með þó nokkrum hundum og tíkum sem hafa verið flutt inn. Ég hef nýtt mér notkun á einum influttum rakka frá Kolskeggs ræktun, sem að ég fékk að fylgjast með frá hvolpsaldri, hjá vinkonu minni henni Líney sem er með Kolskeggsræktun. Að mínu mati skiptir samvinna ræktanda ekki síður máli, en það sem við erum að gera sjálf. Öll þekking sem við getum nýtt okkur á reynslu hvors annars til batnaðar. Með slíku hugarfari gætum við hugsanlega komið Íslandi inná kortið sem eitt af þeim löndum sem eru framarlega í ræktun Dverg Schnauzer.
Fyrsta Svartwalds gotið fæddist í september 2008, 5 hvolpar sem lifðu allir og er mjög lofandi.
Mitt helsta markmið er að rækta fallega, heilbriðga Dverg Schnauzer með frábæra skapgerð. Þeir munu ávalt vera fyrst og fremst frábær gæludýr. Ég rækta samkvæmt FCI standardinum og er félagi í Hundaræktarfélagi Íslands.
María, Svartwalds ræktun









