Ég beið lengi eftir tíkinni minni Merkurlautar Bashimu, eða "Berlín" eins og hún er kölluð . Ég skoðaði fyrsta got Merkurlautar-ræktunar haustið 2004 og varð gjörsamlega heilluð af tegundinni og foreldrum Berlínar. Berlin fæddist ári síðar eða haustið 2005. Eftir kynni mín við tegundina var ekki aftur snúið, Berlin er með þeim skemmtilegustu hundum sem ég hef kynnst, hún er opin skemmtileg, hugrök, þrjósk, þjófótt og heillandi karakter með sína Wisky rödd, Ég er mjög heppinn að hafa kynnst tegundinni hér svona snemma, og nánast fengið að fylgjast með frá byrjun ræktunar hér Íslandi, og kynnst yndislegu fólki og fengið að fylgjast með hverju gotinu á fætur öðru og séð tegundina stækka og dafna Árið 2008 fékk ég lánaðan influttan rakka frá Kolskeggs ræktun á tíkina mína Merkurlautar Bashimu og eftir það var ekkert sem að gat stöðvað þá framvindun sem að átti sér stað í framhaldinu. Líney (kolskeggs ræktun) , Margrét(Merkurlautar ræktun) fluttum inn nokkra hunda saman og hver og einn þeirra hafa verið að skilað sínu inní þann stofn sem að við höfum hér fyrir, bæði í Pipar og salt og Svörtum dverg, einnig flutti ég inn svart silfur rakka með Margréti(Helguhlíðar Ræktun), Láru(Skeggjastaða ræktun) Ég hef verið svo heppin að vera í samstarfi við gott fólk og ræktun mín notið góðs af því. Að mínu mati skiptir samvinna við aðra ræktendur ekki síður máli, en það sem við erum að gera sjálf. Öll þekking sem við getum nýtt okkur á reynslu hvors annars, til batnaðar og unnið að því markmiði að bæta tegundina. Með slíku hugarfari gætum við hugsanlega komið Íslandi inná kortið sem eitt af þeim löndum sem eru framarlega í ræktun Dverg Schnauzer. Við höfum flutt inn samtals 8 dverg schnauzer hunda til landsins, bæði sjálf og með öðrum.
Fyrsta Svartwalds gotið fæddist í september 2008, 5 hvolpar sem lifðu allir og er mjög lofandi.
Mitt helsta markmið er að rækta fallega, heilbriðga Dverg Schnauzer með frábæra skapgerð. Þeir munu ávalt vera fyrst og fremst frábær gæludýr. Ég rækta samkvæmt FCI standardinum og er félagi í Hundaræktarfélagi Íslands.